Tryggjum gæði og öryggi stafrænna innviða með sérfræðiþekkingu og vönduðum vinnubrögðum.

Við sérhæfum okkur í ráðgjöf og þjónustu við tölvukerfi þar sem hver sekúnda skiptir máli.

Þjónusta

Photon sameinar sérfræðiþekkingu, vandað verklag og skýra upplýsingagjöf

Við styðjum fyrirtæki og stofnanir í hönnun, umbótum og rekstri á þeirra tölvukerfum – með áherslu á öryggi, gæði og áreiðanleika.

Ráðgjöf

Hlutlaus og fagleg ráðgjöf með áherslu á gæði, gagnsæi og vandað verklag. Með ráðgjafaþjónustu okkar bjóðum við meðal annars upp á:

  • Stefnumótun tækniumhverfa
  • Þarfagreiningar
  • Aðstoð við val á lausnum og samstarfsaðilum
  • Stuðning við tæknilegar ákvarðanir
  • Hagræðingu og viðhald fjárhagslega markmiða
  • Mótun verklags, ferla og teyma
  • Ráðgjöf við há uppitíma (sub second) umhverfi
Sérfræðiþjónusta

Djúp tæknileg þekking og reynsla sem nýtist þar sem kröfur um gæði, nákvæmni og rekstraröryggi eru miklar. Við sérhæfum okkur í:

  • Netkerfum fyrirtækja
  • Öryggislausnum og eldveggjum
  • Netkjörnum, internet samskiptum og samtengingum útibúa
  • Þráðlausum netkerfum
  • Linux og sérhæfðum hugbúnaði
  • Sjálfvirknivæðing umhverfa
  • Samþætting kerfa
  • Sýndar- og gagnaumhverfi
  • Afritun og endurheimtun gagna
Tækni og verkefnastjórn

Fyrir fyrirtæki sem þurfa áreiðanlegan aðila til að styðja við stöðuleika, breytingar, innleiðingar og góð samskipti. Meðal þess sem við bjóðum upp á:

  • Tæknilega leiðsögn fyrir rekstrar- og innleiðingarteymi
  • Stuðning við ákvarðanatöku og forgangsröðun
  • Brú milli tækni, reksturs og stjórnenda
  • Skýrt skipulag, verkáætlanir og ábyrgð
  • Samhæfing tæknilegra aðila og birgja
  • Reglulega upplýsingagjöf um stöðu og gang mála
Úttektir

Við bjóðum upp á úttektir á umhverfum og rekstri tölvukerfa þar sem við greinum núverandi stöðu og komum með tillögur að úrbótum. Meðal úttekta sem boðið er upp á:

  • Heilsufars staða umhverfis
  • Öryggisúttektir
  • Veikleikagreiningar
  • Úttektir á kostnaði og þjónustusamningum við upplýsingatækni og fjarskipti
  • Rekstrar úttektir
  • Áhættugreining tölvukerfa
Um Okkur

Photon var stofnað til að aðstoða fyrirtæki við að ná hærra öryggis- og gæðastigi í sínum stafrænu innviðum

Við búum yfir mikill reynslu og þekkingu á tækni og brennum fyrir að byggja stöðug, örugg tölvukerfi

Stofnandi 2
Þorgeir Már Jónsson
Netsérfræðingur & Stofnandi

Sérfræðingur í netkerfum með yfir 10 ára reynslu af ráðgjöf, hönnun og rekstri flókinna netkerfa.

Hefur leitt net- og innviðateymi, stýrt tæknilegum umbreytingum og innleiðingu öruggra lausna fyrir fjölbreytt rekstrarumhverfi.

Þekktur fyrir útsjónarsemi og brennandi áhuga á að takast við vandamál og leysa á farsælan máta.

Stofnandi 1
Tryggvi Farestveit
Stofnandi - Hefur störf 01.02.26

Reyndur upplýsingatæknisérfræðingur með yfir 25 ára reynslu í flóknum og krefjandi umhverfum.

Með djúpa tæknilega þekkingu í öryggi, linux og netkerfum. Vottaður CCIE (#69855) ásamt Nutanix, Nokia og Red Hat.

Þekktur fyrir að byggja teymi, þróa þjónustur og tengja saman viðskiptaþarfir og tækni.

Stofnandi 3
Agla Steinunn Bjarnþórudóttir
Stofnandi - Hefur störf 01.03.26

Reyndur sérfræðingur með yfir 10 ára reynslu af vöktun, linux, afritun og flóknum netkerfum.

CCNP vottuð með sérstaka áherslu á há uppitíma umhverfi netþjónustuaðila.

Þekkt fyrir einstaklega breiða tæknilega þekkingu, vandað vinnulag, nákvæmni og að einfalda flókin verkefni.

Hafa samband

Byrjum á 30 mínútna samtali

Heyrðu í okkur með því að senda á photon@photon.is og við tökum spjall um þínar þarfir og væntingar.

Einnig er hægt að hafa beint samband við

Dæmi um spurningar sem þú getur sent

  • „Við erum með vandamál og getið þið aðstoðað okkur?"
  • „Getið þið farið yfir núverandi umhverfi og bent á betrumbætur?“
  • „Við viljum styrkja öryggi og gæði innviða – hvað er skynsamlegt fyrsta skref?“
  • „Við erum að undirbúa breytingar eða flutning – getið þið gengið í gegnum áætlunina með okkur?“

Við reynum að svara innan eins virks dags. Ef við erum ekki rétti aðilinn fyrir verkefnið þitt, bendum við á aðrar raunhæfar leiðir.